Registrieren

Registierung erfolgt in Kürze...
Fleebs-Logo
Details werden geladen...

Innherji - Hvers virði er Bláa lónið og hvenær lækka vextir? - Sjónvarp - Vísir

Í þætti dagsins ræðum við fjárfestaráðstefnuna Arctic Investments 2026 sem var haldin í London í síðustu viku.  Hörður Ægisson ritstjóri Innherja hlýddi þar á ræðu Kristrúnar Frostadóttur sem hvatti til erlendra fjárfestinga í orku og innviðum á Íslandi. Kristrún vakti mikla lukku á meðal erlendra fjárfesta á meðan þeir innlendu veltu fyrir sér hvort orð hennar væru samhljóma aðgerðum ríkisstjórnarinnar.  Þá er einnig farið yfir útboð Bláa lónsins sem fer fram í vikunni og hvað þarf að ganga upp til að 95 krónur á hlut teljist gott verð. Í seinni hluta þáttarins fáum við til okkar Eggert Þröst Þórarinsson hjá Acro en um árabil vann hann að fjármálastöðugleika í Seðlabankanum. Eggert er beðinn um að útskýra hvers vegna hann telur að hagkerfið kunni að vera að kólna hraðar en Seðlabankinn gerir ráð fyrir og síðast en ekki síst, hverju hann býst við þegar ákvörðun um vexti verður kynnt 18. nóvember.

Videos

Innherji - Hvers virði er Bláa lónið og hvenær lækka vextir?

Innherji - Hvers virði er Bláa lónið og hvenær lækka vextir?

Ähnliche Seiten