Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn - Vísir
Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks ritar mikla grein sem hann birtir á Vísi þar sem hann rekur ítarlega mál Páls Steingrímssonar skipsstjóra á hendur Ríkisútvarpinu og Þóru Arnórsdóttur fyrrverandi ritstjóra Kveiks. Hann segir ekki standa stein yfir steini, hvorki í málatilbúnaði Páls skipstjóra, sem hann segir mótsagnakenndan auk þess sem Kristinn fordæmir aðkomu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.