Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja - Vísir
Ég fagna því að norska ríkisstjórnin ætlar ekki lengur að bíða þar til ákvarðanir ESB eru fullmótaðar áður en hún lætur til sín taka. Hún vill verja norska hagsmuni fyrr, forgangsraða EES-málum af meiri festu og samhæfa stjórnsýsluna betur. Að mínu mati er þetta einmitt sú stefnubreyting sem Ísland þarf að taka sér til fyrirmyndar.