Kennari sökuð um að stunda kynlíf með ættleiddum sonum sínum | DV - Frjáls og óháður miðill
Sumar fréttir eru eiginlega svo undarlegar að maður trúir næstum ekki eigin eyrum eða augum. Það á við um mál 35 ára bandarískrar konu, sem hefur starfað sem grunnskólakennari, sem er nú í gæsluvarðhaldi grunuð um að hafa stundað kynlíf með tveimur ættleiddum sonum sínum, 17 og 18 ára. Hún á allt að 10 ára fangelsi yfir höfði sér.Konan, sem heitir Amber Swain, hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri samtaka sem hjálpa fósturbörnum.