Undarleg stefna í umræðunni um ESB - Vísir
Ég furða mig á hvers vegna aðalbaráttan um ESB fer fram í mjólkurbúð eða á skyndibitastöðum. Þetta er stór ákvörðun um framtíð okkar og afkomenda okkar sem við erum að ræða, ekki um hvað við borgum fyrir skyndibita þó að við rennum honum niður með mjólk. Verðið á þessum hlutum er ekki fast og getur breyst hvenær sem er, bæði hér heima og í öðrum löndum. Það er margt sem hefur áhrif á verð eins og kostnaður við flutning og kostnaður við framleiðslu.