Hinn háskalegi hugsunarháttur - Vísir
Eins og margoft hefur verið bent á ríkir sú sérstaða meðal íslensku þjóðarinnar, að fólk þar metur allt sem tengist fjármálum á jafnvægisvog verðtryggingar. Öll útgjöld, allur rekstur, öll töp og allur fjárhagslegur gróði er metinn á þessa sömu og einföldu vog. Nú er verðtryggingamælistikan sögð vera 5,4% - þ.e. mælikvarði yfirstandandi verðbólgu á Íslandi. Bankavextir munu víst vera orðnir 8%. Svo hljóða þeir vextir, sem bankar taka af viðskiptavinum sínum sem eru lánsþurfi. Gróði bankanna af lánastarfsemi sinni er svo talinn samsvara röskum fjórðungi af 8% heildarvaxtaálögum þeirra. Á þann gróða leggur ríkisvaldið nú bankaskatt.