„Vonandi ekki okkar einkennismerki“ - Vísir
„Þetta er góð tilfinning. Við erum að vinna þriðja leikinn í röð svo við erum að ná smá skriðþunga núna. Auðvitað var þetta ekki fullkomið, það eru hlutir sem við þurfum að vinna í en við getum ekki verið annað en ánægðir með 30+ stiga sigur,“ segir Svíinn Adam Ramstedt eftir 108-74 sigur KR gegn Ármanni í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld.