Icewear frumsýnir glænýja SPORT línu - Vísir
Icewear frumsýnir Icewear SPORT, nýja og fjölbreytta íþróttalínu sem hönnuð er fyrir alhliða íþróttaiðkun. Nýverið undirrituðu allar deildir Fjölnis í Grafarvogi og handknattleiksdeild Þórs á Akureyri samstarfssamninga við Icewear en meistaraflokkar Fjölnis í fótbolta, handbolta og körfubolta eru þegar komnir í nýju búningana ásamt handknattleiksliði Þórs. Auk þess var lína yngri flokka kynnt í verslun Icewear SPORT í Fákafeni og á icewear.is.