Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli - Vísir
Ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir hefur skapað sér nafn fyrir stórbrotnar ljósmyndir úr íslenskri náttúru og sankað að sér meira en tveimur milljónum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Ása var viðmælandi í nýjasta þætti Íslands í dag og veitti þar innsýn inn í líf og störf eins áhrifamesta kynningarafls íslenskrar ferðaþjónustu.