Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu - Vísir
Pep Guardiola var svo nálægt því að verða nýr landsliðsþjálfari Ítalíu að hann byrjaði að krota niður möguleg byrjunarlið á blað í viðræðum um starfið, að sögn Paolo Maldini sem hefur nú tjáð sig um viðræður sínar og spænska þjálfarans.