Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu - Vísir
Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjögur í dag eða í þann mund sem frestur til að segja þeim upp vegna forsendubrests rann út. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt.