Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax - Vísir
Rekstur Hafnarfjarðarbæjar er ekki sjálfbær. Það hefur raunar legið fyrir um nokkurn tíma. Bæði ársreikningur síðasta árs og árshlutauppgjör þess árs leiða svo í ljós að staðan hefur farið hratt versnandi. Rekstur bæjarins hefur á undanförnum árum hvílt á einskiptis tekjum vegna lóðasölu, þ.e. óvissum framtíðartekjum á kostnað raunhæfra forsenda. Á sama tíma var lítið aðhafst til að gera grunnrekstur bæjarins sjálfbæran. Samfylkingin varaði við þessari þróun allt síðasta kjörtímabil og nú er alvarleg fjárhagsstaða bæjarins að raungerast.