MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing - Vísir
Stundum er einfaldlega nauðsynlegt að segja hlutina nákvæmlega eins og þeir eru. Til að lýsa ástandinu rétt, og án afsláttar og undansláttar, hef ég búið til ákveðna skammstöfun yfir það sem blasir við: MBA – Meðvirkni, Bómullar- og Aumingjavæðing. Ég hef sterkan grun um að ég sé alls ekki einn um þessa skoðun, þótt margir veigri sér við að tjá sig tæpitungulaust af ótta við stimplun og útskúfun í samfélagsumræðunni.