Barclays telur Alvotech hafa fært sterk rök gegn kröfu Janssen um lögbann - Innherji
Alþjóðlegi fjárfestingabankinn Barclays telur að Alvotech hafi fært sterk rök gegn kröfu lyfjafyrirtækisins Janssen um tímabundið lögbann sem gæti komið í veg fyrir markaðssetningu hliðstæðulyfs félagsins við Simponi í Bandaríkjunum. Greinendur bankans fylgdust með málflutningi í síðustu viku og segja að niðurstaðann þar hafi aukið bjartsýni þeirra á stöðu Alvotech í einkaleyfisdeilunni.