Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar - Vísir
Grindavík/Njarðvík jók möguleika sína á að vera í efri helmingi Bestu deildar kvenna eftir skiptingu með 4-0 sigri á Fram í fyrsta leik 16. umferðar í Njarðvík í kvöld. Ása Björg Einarsdóttir skoraði fyrstu tvö leiksins og lagði það þriðja upp fyrir Söntu Vuskane. Sú síðarnefnda lagði svo fjórða og síðasta mark leiksins upp fyrir Emersen Jennings.