Hvað ef ég hefði verið frá Úkraínu? - Vísir
Nýverið heimsótti ég úkraínsku borgina Lviv í vesturhluta landsins. Ég var þar einn á gangi um miðjan dag þegar fimm grímuklæddir herlögreglumenn spruttu skyndilega út úr sendibifreið og stöðvuðu för mína. Hastarlega kröfðu þeir mig svara um ferðir mínar og hvort ég hefði undanþágu frá herskyldu. Sem betur fer gat ég sýnt fram á að ég væri Íslendingur og fékk þá að halda áfram með daginn.