Íslensk hjón segja frá swing-lífsstílnum: „Við tókum hjónabandið alveg í sundur“ - Vísir
Það er föstudagskvöld í úthverfi Reykjavíkur. Börnin eru farin í pössun og hjón á fimmtugsaldri eru að gera sig til. Hún velur sér kjól, hann straujar skyrtuna og þau velta fyrir sér hvort þau eigi að taka leigubíl. Ekkert óvenjulegt við það, nema hvað þau eru ekki á leiðinni í matarboð eða á árshátíð. Þau eru á leiðinni í swing-partí.