Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
„Ég var þekktur sem strákurinn sem elskaði Glee og eldri strákarnir voru oft á göngunum að öskra „Binni Glee“ á mig. Ég veit ekki hvort það hafi átt að vera móðgun en ég tók því ótrúlega vel. Það er þeim að þakka að ég sé Binni Glee,“ segir raunveruleikastjarnan Brynjar Steinn, sem er líklega þekktasti Glee-aðdáandi landsins og er fullur tilhlökkunar fyrir endurkomu þáttanna.