Eftirförin endaði með hvelli - Vísir
Myndskeið sýnir hvernig fjöldi lögreglumanna stöðvaði og yfirbugaði ökumann deilibíls Hopp í dag. Sá hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og er sagður hafa ekið utan í minnst fjórar bifreiðar á leið sinni frá Lágmúla að Víðidal í Reykjavík. Þar af voru tveir lögreglubílar.