Dramatískt sigurmark Merino - Ronaldo og félagar úr leik | DV - Frjáls og óháður miðill
Spánverjar slógu Portúgal úr leik í stórleik í 16-liða úrslitum HM í kvöld. Leikurinn var heldur lokaður. Liðin áttu álitlegar sóknir en voru bitlaus fyrir framan markið.Þegar leið á virtust Spánverjar líklegri til að finna mark en flestir héldu þó að leikurinn væri að fara í framlengingu þegar Ferran Torres renndi boltanum inn á Mikel Merino og hann skoraði í uppbótartíma.Það reyndist sigurmarkið. Lokatölur 1-0 og Spánn mætir Bandaríkjunum eða Belgíu í 8-liða úrslitum.
Ähnliche Seiten
Ótrúlegur Haaland henti Brasilíu úr leik á sögulegu kvöldi | DV - Frjáls og óháður miðill