Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall - Vísir
Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er haldinn ár hvert 8. september. Sjúkraþjálfarar skipa fjölmennustu stétt landsins á sviði endurhæfingar og spila stórt og mikilvægt hlutverk í heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga. Þema dagsins í ár er hlutverk sjúkraþjálfunar og líkamlegrar virkni í forvörnum, meðferð og endurhæfingu hjarta- og æðasjúkdóma. Einn þessara sjúkdóma sem vert er að vekja athygli á er heilablóðfall.