Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi - Vísir
Alsír hefur sent formlega kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna „ranglætis af hálfu dómarans“ í opnunarleiknum gegn Argentínu á HM. Heimildarmaður innan alsírska knattspyrnusambandsins upplýsti fréttastofuna AFP um kvörtunina á föstudag.