Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin - Vísir
Nú þegar nóvember er genginn í garð og jólin nálgast fara flest okkar að huga að undirbúningi hátíðanna. Við hlökkum til samverustunda með fjölskyldunni, góðs matar og þess að gleðja börnin okkar. En því miður eru jólin ekki jafn áhyggjulaus hjá öllum.