Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart - Vísir
Hrísgrjón sem standa of lengi við stofuhita geta valdið veikindum. Mygla á einni brauðsneið getur náð lengra inn í brauðið en augað sér. Og mjólk sem er komin nokkra daga fram yfir „best fyrir“ þarf ekki sjálfkrafa að fara í vaskinn. Þetta eru meðal þeirra hversdagslegu atriða sem Radek B. Dudziak heilbrigðisfulltrúi vill fá fólk til að hugsa aðeins meira um, án þess þó að gera það dauðhrætt við eigið eldhús.