Tugþúsundir mótmæltu í Tirana - Vísir
Tugþúsundir Albana mótmæltu í höfuðborginni Tirana í gærkvöldi, þrítugasta og fimmta daginn í röð. Kallað er eftir afsögn forsætisráðherrans Edi Rama, stjórnarskrárumbótum og raunhæfum aðgerðum gegn spillingu í landinu.