Lækka verð á þúsund vörum - Vísir
Verð hefur verið lækkað tímabundið á um þúsund vörum í verslunum Bónuss og Hagkaups. Með þessu vilja Hagar, eigandi verslananna, styðja við samstöðu aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um að ná niður verðbólgu og vöxtum.