Leik lokið: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið - Vísir
Njarðvík stal heimavallarréttinum í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna með því að vinna tólf stiga sigur, 80-92, á ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka í fyrsta leik liðanna á Ásvöllum í kvöld. Leikmenn Njarðvíkur mættu mun ákveðnari til leiks og höfðu stjórn á leiknum nær allan tímann.