Hjartalæknir segist forðast þetta eftir klukkan 18 | DV - Frjáls og óháður miðill
Flestir tengja heilbrigði hjartans við mataræði og hreyfingu en eftir því sem hjartalæknirinn Francesco Lo Monaco segir þá skiptir ekki minna máli hvað maður gerir á kvöldin.Onet skýrir frá þessu og segir að Monaco hafi bent á að líkaminn sé að undirbúa sig undir hvíld síðustu klukkustundirnar fyrir svefninn. Ef þetta ferli sé truflað, geti það haft áhrif á svefninn og starfsemi hjartans.