Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn - Vísir
Stór steinn fór í gegnum nýuppsettar hrunvarnir meðfram Hringveginum við Holtsnúp undir Eyjafjöllum í morgun. Steinninn braut sér leið í gegnum grjótgrindurnar og olli töluverðum skemmdum á þeim.