Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir - Vísir
Það væri undarleg taktík að boða 5,2 prósenta gjaldahækkanir til að fá sveitarfélög, atvinnurekendur og verkalýðsfélög að samningaborðinu um minni hækkanir, að mati Almars Guðmundssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann vill að ríkið fylgi fordæmi sveitarfélaganna og takmarki hækkanirnar við 2,5 prósent.