Dagana 8. – 15. mars 2023 fór fram kosnining um embætti formanns VR. Kosið var á milli Ragnars Þór Ingólfssonar sem gegnt hafði formennsku í félaginu í sex ár og Elvu Hrannar Hjartardóttur sérfræðings á skrifstofu VR. Ragnar Þór var endurkjörinn með 57 prósentum atkvæða gegn 39 prósentum atkvæða Elvu Hrannar.