Par ákært fyrir morð á barþjóni sem fannst í pörtum – Kennsl borin á hann vegna húðflúra | DV - Frjáls og óháður miðill
Parið Mario Barber og Brittany Baker hafa verið handtekin í Douglas-sýslu í Georgia-ríki, BNA, í tengslum við morð á barþjóninum Jamal Rashad Parker, en líkamsleifar hans fundust í pörtum í uppistöðulóni nálægt borginni Atlanta, í maímánuði. Borin voru kennsl á Jamal vegna húðflúra sem fundust á sumum líkamspörtunum og einnig með DNA-greiningu á lífsýnum. Þau Mario Barber (46) og Brittany Baker (42) voru handtekin vegna málsins þann 16. júní eftir að rannsókn lögreglu hafði staðið yfir í nokkrar vikur. Talið er að Jamal hafi látist á heimili Brittany.