Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið - Vísir
„Mér finnst að tíska ekki eiga að snúast um reglur heldur um forvitni og leikgleði,“ segir hin 25 ára gamla Sigurbjörg Birta Pétursdóttir. Hún er verslunarstjóri í nytja-tískuversluninni Spúútnik í Kringlunni og segist elska að vera umkringd fjársjóðum annarra alla daga.