Moskítóflugan virðist ekki láta íslenska vetrarfrostið á sig fá en skordýraáhugamaður í Kjósinni fann flugu í garðinum hjá sér í vikunni. Hann hafði í sumar leitað að lirfum en án árangurs og því ekki átt von á því að finna fleiri flugur en bíði spenntur eftir því að sjá hvort fleiri stingi upp kollinum.