Gott kvöld fyrir Framara - Vísir
Framarar geta lagst brosandi á koddann í kvöld því báðir meistaraflokkar félagsins í handboltanum unnu flotta sigra. Karlaliðið rúllaði Eyjamönnum upp úti í Eyjum í Olísdeildinni og Framstelpurnar fylgdu því eftir með því að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Poweradebikarsins.