Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki - Vísir
Fólk hefur farið inn í skóla í Reykjavík og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að endurskoða þurfi hvernig öryggi nemenda og kennara sé tryggt í skólunum. Hún segir samfélagið hafa breyst og kennarar óttast um öryggi sitt. Hún hafi heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennsla fer fram.