Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann - Vísir
Ragnar Agnarsson segist upplifa sig sem heppnasta mann í heimi eftir að hafa sigrast á alvarlegu krabbameini í hálsi. Ragnar, sem var um árabil forstjóri og einn eigenda SagaFilm, er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Þar segir hann sögu sína og hvernig líf hans hefur algjörlega kúvenst á undanförnum árum og allt orðið breytt.