„Það er mikið Aroni að þakka“ - Vísir
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði eftir leikinn gegn Lúxemborg í kvöld að íslenska liðið væri búið að taka skref fram á við frá því í fyrra þó leikurinn í kvöld hafi ekki verið fullkominn. Hann hrósaði Aroni Einari Gunnarssyni, sem lék sinn síðasta landsleik í kvöld, í hástert eftir leik.