„Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ - Vísir
Tinna Hrund Birgisdóttir greindist óvænt með fjórða stigs krabbamein haustið 2023, aðeins fjörutíu ára gömul. Hún lifði í átján mánuði frá greiningunni og nýtti fjölskyldan þá til fulls. Þegar hún féll frá tók við erfitt ferli þar sem aðstandendur hennar þurftu að eiga við kerfið og ganga á eftir öllum lausum endum. Ekkill hennar segir núverandi kerfi óboðlegt og að létta þurfi undir aðstandendum.