Heimilislæknar og reglugerðardrög - Vísir
Margir landsmenn sakna þess að hafa ekki fastan tengipunkt við heilbrigðiskerfið, ekki síst þau sem þurfa reglulega á heilbrigðisþjónustu að halda, eins og langveikt og eldra fólk. Norsk rannsókn sýndi að fólki sem hefur fastan heimilislækni farnast betur og þarf síður á innlögnum á sjúkrahús að halda.