Rashford þarf að fara svo United geti keypt manninn sem þeir vilja | DV - Frjáls og óháður miðill
Crysencio Summerville er orðinn einn helsti kostur Manchester United til að styrkja vinstri kant sóknarinnar fyrir komandi tímabil.Samkvæmt heimildum er staða félagsins á leikmannamarkaðnum þó enn í mótun og næstu skref ráðast að miklu leyti af framtíð Marcus Rashford á Old Trafford.United hefur verið orðað við nokkra kantmenn í sumar en Summerville virðist nú vera ofarlega á óskalistanum. Hollendingurinn hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri með frammistöðu sinni á Englandi og er talinn henta leikstíl félagsins vel.