Húsið tryggt fyrir eldi en ekki tundurduflum - Sjónvarp - Vísir
„Fjölskyldan var orðin fimm manns þegar ósköpin dundu yfir,“ segir Óli Ægir Þorsteinsson, sjómaður á Þórshöfn, í þættinum „Um land allt“ þegar hann lýsir aðdraganda fæðingar sinnar á Langanesi. Tundurdufl kom í veg fyrir að Óli fæddist í húsi fjölskyldunnar í þorpinu að Skálum í lok nóvember árið 1941.