City að stela skotmarki Arsenal | DV - Frjáls og óháður miðill
Manchester City er að nappa undrabarninu Jeremy Monga hjá Leicester fyrir framan nefið á Arsenal.Arsenal hefur lengi verið talið líklegast til að fá þennan 16 ára gamla kantmann, en nú nú virðist hann á leið til City. Sagt er að nýr stjóri City, Enzo Maresca, hafi beitt sér fyrir því að fá kappann, en hann vann áður með Monga hjá Leicester.Monga varð þriðji yngsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann lék sinn fyrsta leik aðeins 15 ára gamall.