Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ - Vísir
Næstæðsti yfirmaður Íslamska ríkisins á heimsvísu var felldur í árás bandarískra og nígerskra hermanna í Nígeríu í nótt. Abu Bilal al-Minuki var mjög valdamikill innan hryðjuverkasamtakanna og hafði spilað stóra rullu í upprisu ISIS í Afríku og þá sérstaklega á Sahel-svæðinu.