Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ - Vísir
Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Hann óttast samt að brotthvarf reynslumikils framkvæmdastjóra muni draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ og vonast til að fundin verði leið fyrir hana aftur til starfa, þó með skýrari verkaskiptingu. „En tvo þarf til.“