Reynt að kúga dreng með gervigreindarmyndum - Sjónvarp - Vísir
Erlendir netkúgarar hótuðu að dreifa gervigreindarbúnu kynferðislegu myndefni af íslenskum unglingspilti ef hann greiddi þeim ekki tíu þúsund krónur. Þetta gerðist eftir að hann samþykkti vinabeiðni á samskiptaforritinu Discord. Pilturinn reyndi að bera þetta einn þar til hann sagði foreldrum sínum loks frá og málið var tilkynnt lögreglu.