Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? - Vísir
Á laugardaginn fer fram atkvæðagreiðsla um hvort ganga eigi til viðræðna um inngöngu í Evrópusambandið. Ljóst er að skoðanir eru mjög skiptar. Eigum við að ganga til samninga eða ekki? Hugmyndir um mögulega aðild hafa komið upp í áratugi. Hvað er best fyrir okkur Íslendinga? Þegar ég var ungur maður var ekki langt liðið frá þorskastríðunum, en þeim lauk með fullum yfirráðum Íslands yfir fiskimiðunum fyrir um 50 árum. Sú niðurstaða skipti þjóðina miklu máli. Á þeim tíma taldi ég að við ættum ekkert erindi inn í Evrópusambandið. En hver er staðan núna – eigum við erindi inn?