Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
Guðný Pála Rögnvaldsdóttir kennari og söngkona er í miðri meðferð við þriðja stigs brjóstakrabbameini en undirbýr sig um leið fyrir tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu. Hún ætlar ekki að setja tímamet, heldur einfaldlega að mæta, halda áfram og komast í mark áður en því verður lokað.