Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi - Vísir
Mette-Marit krónprinsessa af Noregi heimsótti sjúkrahús í dag ásamt Hákoni krónprinsi sem mætti fyrr til Noregs í morgun úr heimsókn sinni til Japan vegna veikinda prinsessunnar. Mette-Marit er með alvarlegan lungnasjúkdóm og hefur áður verið greint frá því að heilsu hennar hafi hrakað hratt.