Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ - Vísir
Sölvi Geir Ottesen hefur nú gert Víkinga að Íslandsmeisturum fyrstu tvö ár sín í starfi sem aðalþjálfari. Í öllum látunum í Vesturbænum í dag, þar sem Sölvi missti tvo leikmenn og tvo aðstoðarmenn í burtu með rautt spjald, virtist enginn rólegri en skipstjórinn sjálfur sem sigldi skútunni af öryggi í höfn.